DIJON
Flugið frá Krít gekk vel. Undirbúningurinn er eins og venjulega; uþb tvær klukkustundir fyrir flugtak og aðrar tvær til þrjár klukkustundir eftir lendingu á hverjum stað. Svo vinnudagarnir eru ansi langir, stundum strangir en þó aldrei annað en skemmtilegir. Ég held að segja megi með vissu að farþegarnir séu ánægðir með flugið og þjónustuna um borð. Þó hópurinn sé líflegur og stutt í grínið hefur það alltaf verið númer eitt hjá okkur að vinna þessa flugferð örugglega og fagmannlega.
Flugvélin okkar hefur líka verið góð og engar stórar bilanir komið upp, bara þetta hefðbundna viðhald og eftirlit. Gefum flugvirkjanum okkar, Magga, og þeim sem gerðu vélina klára fyrir þetta ferðalag, gott klapp. Klapp!
Dijon er fallegur staður, það er einn dagur sem við höfum hér til að skoða okkur um. Kannski að fólk noti tækifærið og skoði sig um, eða hreinlega hlaði batterýin fyrir vinnudaginn á morgun.
Ferðin næstum á enda. Komin í rigninguna í Dijon.

Fly with me.....
Frábær flugvél, flottar freyjur.
Gamli vonast til að fá hlutverk í Top Gun 2.
Ljúfan okkar á rampinum í Dijon.
Fiat Antique
Fiat Futura
Dijon sinnep, beint frá býli. Yndislega gott. Farþegunum verður boðið uppá þetta í næsta flugi.
ITS þakkar klappið
ReplyDeleteLilli