ÍSLAND, AFTUR HEIM.
Öll ævintýri taka enda og þetta er ekki undanskilið því. Ekki er laust við að lagt hafi verið upp í þessa síðustu flugferð með nokkrum trega. En það sem skiptir mestu er að endirinn var góður og farsæll. Engin óhöpp, engar bilanir. Ekkert vesen. Allir komu þeir aftur......
Síðasta flugleiðin lá frá Dijon heim til Ísafoldar. Við vöknuðum snemma, að venju, en nú skein haustsólin skært. Dijon er falleg borg. Full af menningu, góðum mat, fallegu fólki og skemmtilegum arkítektúr. Já og sinnepi...
Frakkland hvatt með stæl.

Mmmmmmm.
Á leiðinni ú tá flugvöll kom í ljós að blómaskreytingar vantaði fyrir farþegana. Þá var rútunni snúið um þröngar götur Dijon og leituð uppi blómabúð sem opnar snemma. Þetta fannst Kapteininum alveg svakalega skemmtilegt svona í morgunsárið, enda mikill fagurkeri á blóm.
Make love.....not war.
Og veislan hélt áfram um borð.
Leyndardómur þessarar ferðar var dularfullt hvarf lukkubangsans, Snjólfs. Einhversstaðar á miðri leið hvarf hann og þrátt fyrir mikla leit í vélinni og ferðatöskum fannst hann ekki. Það var svo á síðustu flugleiðinni að hann birtist aftur og var þá með uppáskrifað afsökunarbréf frá einum farþeganum!!Kom á daginn að þeir félagarnir höfðu verið á rúllandi-einka-skralli í þessari ferð. Ekki laust við að greina megi skömmustulegan augnsvip á loðna kvikindinu.
Flugferðin heim frá Frakklandi tók 03:32 og var mjög hefðbundin enda flugvélin komin inn í þau svæði á ný sem Icelandair flýgur í á hverjum degi. Við lækkuðum flugið snemma, enda tóku veðurguðirnir á móti okkur með ljúfu haustveðri, bjartviðri og hægum vindi. Flogið var yfir Vestmannaeyjar með mikla yfirsýn upp á hálendi Íslands. Þaðan meðfram suðurstöndinni, Krísuvíkurbjargi og lent til norðurs í Keflavík. Eftir lendingu var svo stutt samvera með farþegunum okkar í betri stofunni í Leifsstöð. Þar var knúsað, spjallað, þakkað fyrir sig og smellt af myndum. Það var gott að vita til þess að fólki fannst vel um sig hugsað.
Flug FI 1220 lent eftir farsæla ferð. Allt þetta ferðalag, rúmar 16.000 sjómílur að lengd, yfir fjöldamörg framandi lönd, þar sem 130 þúsund kílóum af eldsneyti var brennt, gekk að óskum. Ekki hægt að biðja um meira. María, Elín Ida, Dillý, Ásgeir, Hildigunnur, Þórir, Kristján og Sara þakka fyrir sig.
Elvis has left the building..........
Velkomin heim yndislega áhöfn!! Já, þetta tekur allt enda og ákveðinn söknuður........... en ég veit að þið eigið eftir að hittast fljótlega aftur!!! ÉG veit það bara!
ReplyDelete