Thursday, September 20, 2012


Hópurinn hefur átt góðann hvíldardag í Budapest og notuðum við tækifærið og skoðuðum borgina. Budapest var reist af Rómverjum stuttu eftir Krist, svo saga þessarar borgar er löng en oft á tíðum æði blóði drifin og má meira að segja sjá sundurskotnar byggingar enn í dag eftir átök fortíðarinnar. Engu að síður er borgin mjög svo rík af fallegum byggingum og litríku mannlífi. Við mælum hiklaust með því að fólk komi hingað, skoði arkítektúrinn og fái sér gúllas súpu.
 

Áhöfnin fer svo snemma í háttinn enda byrjar annasamur dagur áður en sólin kemur upp hér í Undverjalandi. Snillingarnir okkar, Jón og Siggi - Matreiðslumeistarar  með stóru emmi - sofa hinsvegar lítið því þeirra vakt stendur etv alla nóttina. Þeir hafa útvegað sér nauðsynlegt hráefni og munu í kvöld búa til þær kræsingar sem bíða farþeganna ferskar í fyrramálið.
Dagurinn var helgaður fluginu með einum hætti eða öðrum. Hér skoðar Dillý náttúrulegt "winglets".
 
 

Aðstæður verða spennandi á morgun en þá verða flognar um 3100 sjómílur, ma gegnum loftrými Afganistan og Pakistan og lent á flugvellinum í Amritsar í Indlandi. Veðurspáin er góð þótt eitthvað sé af rigningu í veðurkortum. Við þekkjum rigninguna svosem.

                                                           Fluggalli framtíðarinnar? Já takk.
 

Að lokum er hér fallegt myndband, sem minnir okkur á hversu lítil jörðin er, þó okkur finnist hún stór.
 http://www.youtube.com/watch?v=It4WxQ6dnn0&feature=related

1 comment:

  1. Þetta verður bara gaman. Dillý, nærðu þá til baka núna sólarhringnum sem við týndum 2007?

    OTS

    ReplyDelete