Ungverjaland - Indland
Fallegtflugfólk.is
Dagurinn tekinn snemma, eins og alltaf. Áhöfnin mætir amk 2 klukkustundum á undan farþegunum út í vél. Allt skal vera klárt og klappað. Ímyndaðu þér að þú sért bæði að koma flugvél á loft og halda risastóra veislu um leið. Þetta er svoleiðis dæmi. Ferlega skemmtilegt.
Okkur hefur gengið vel og vonandi tekst okkur áfram að halda áætlun svona vel. Það leggjast amk allir á eitt. Góður hópur.
Flugið frá Budapest til Amritsar voru 6 klukkustundir og 20 mínútur. Athyglisvert var að fljúga gegnum lofthelgi Afganistan, þar var bara radíósamband við Ameríkanana, líklega flugherinn, voru ósköp hernaðarlegir í samskiptum við okkur. Lentum svo í Amritsar uppúr 13 að íslenskum tíma, eða 18:30 að Indverskum. Aðeins að við séum farin að finna tímamismuninn. Þá er bara að laga sig að því. Hér er heitt.
Ætlum að eiga góðan dag hérna og skoða okkur um.
Við erum ekkert að grínast þegar við segjum "elegant"
Afganistan var athyglisvert. Við í örygginu þarna uppi í 37.000 fetum en allt í rugli í fjöllunum fyrir neðan okkur. Þar vill maður ekki vera.

Fararstjórar sjá um fyrirlestra á fluginu og farþegarnir fá Ipad til að fylgjast með myndasýningu samhliða. Flott.
Samningaviðræður um eldsneytiskaup. Ekki fengust meira en 17 tonn í þetta skiptið. Vonandi við náum að kaupa amk 6 tonn í viðbót þegar við förum á morgun. Flottur galdrakallinn með bláa túrbaninn.
Einfaldir hlutir mikilvægir. Eins og að loka pitot rörunum. Annars geta skordýr skriðið inní þau og truflað hraðamælana. Það væri bara vesen.
Maggi Mekki er Meðedda.....
Elín Ida fær blessun við komuna á hótelið í Indlandi.
No comments:
Post a Comment