चीन भारत
Indland - Kína.Skemmtilegt indverskt þema mætti farþegunum við brottför frá Indlandi.
Indverska upplifunin var alveg einstök.
Indland- Kína, langur dagur að baki og pínu strembinn. Tók langan tíma að koma vélinni í loftið í Amritsar, vandræði með að fá trukk til að ýta okkur frá stæði og af stað. Næsta mál á dagskrá er að útbúa bakkgír á flugvélina okkar.
Gamli alveg með þetta. Diddi og Hidligunnur.
Dillý, Elín, Siggi, Nonni og Maggi.
Eftir að í loftið var komið gekk flugið sjálft vel. Heildartíminn frá því við fórum af stæði og þar til við lögðum við flugstöðina í Ninbo var 06:55. Leiðin lá yfir Indland, Bangladesh, Burma og inn í Kínaveldi. Það er að farið að verða meira "fútt" að fljúga fyrir flugmenninna á þessum slóðum; veðrið er farið að breytast, skýin bólgna og stækka í hitanum, færri flugumferðarstjórar tala góða ensku og svo breytast einingar fyrir hæðarmælingar í metra en flugvélin okkar er útbúin mælitækjum í fetum eins og notað er á okkar venjulegu flugleiðum. Svo menn tóku upp sitt hvorn reiknistokkinn og báru saman útreikninga sína í hvert sinn sem breyting var á flughæð.
Himalaya fjöll. Everest til vinstri, K2 til hægri. Talið er að 1 af hverjum 3 láti lífið í tilraunum sínum komast á toppinn.
Það tók svo dágóðan tíma að ganga frá vélinni eftir lendingu og komast gegnum báknið og skriffinskuna sem Kínverjar eru svo hrifnir af. Vélin var auðvitað spreyjuð af grímuklæddu fólki, sjálfsagt til að drepa allar stórhættulegu veirurnar sem fylgja okkur. Okkur kemur þetta spánskt fyrir sjónir.
Ásgeir með gula litinn. Þórir fylgist með og tekur glósur.
Skýjin falleg.....úr fjarska.
Það var líka athyglisvert að þegar gengið er inn í vegabréfsskoðun þá er þar líkamshitaskanni sem greinir hvort aðkomufólk er með hita. Við spurðum hvaða ferlar fara í gang ef maður fær hita á leið sinni til Kína. Viðkomandi má þá eiga von á að vera stoppaður, settur í læknisskoðun og jafnvel vísað úr landi.
Samt er viðmót almennings mjög gott og við hlökkum til að skoða okkur um í Ninbo. Áhöfnin fær gott stopp hér og stefnan sett á að skoða markaði og mannlífið.
Nei dreptu mig hvað flugmennirnir eru FÍNIR með fínu flugmannahattana sína..haha þið eruð æði :)
ReplyDeleteIndland heillar!
Hafið það dásamlegt elskurnar og risa knús til stærstu stelpunnar.
Love Bergur