Sunday, September 30, 2012

GOOOOOOOOOD MORNING VIET NAM


Farþegar fengu fallegar móttökur í Hanoi.



Ekki messa við Kúng Fú klíkuna.


Good morning Viet Nam...komin til þessa fallega lands Drekans, lentum í Hanoi um hádegi. Hitinn og rakinn skullu á okkur eins og gufubað, það varð fljótlega ólíft í lestinni, þangað sækjum við vistirnar, svo við pökkuðum saman, innsigluðum vélina og drifum okkur á hótel Intercontinental sem er byggt út í vatnið West Lake og alveg að okkar skapi. Eyddum kvöldinu hvert á sínu herbergi að hlusta á Vietnamska þjóðlagatónlist.

Lögðum í´ann snemma næsta morgun til Halong Bay, sem er undursamlegur flói með rúmlega 1600 ´limestone‘ kletta eyjum. Flóinn komst á heimsmynjaskrá Unesco sem eitt af sjö undrum veraldar fyrir nokkrum árum og skyldi engan undra. Áttum bókaðan bát, bara fyrir okkur, í sólarhrings siglingu, hvílíkt ævintýr. Sigldum á kajökum inn í hella og inn á lokuð lón..........fegurðin ólýsanleg. Lostæti úr hafinu í öll mál, rækjur með haus og hala í morgunmat. Sváfum eins og ungabörn í öldugjálfrinu, klifum svo upp í Surprice hellinn morguninn eftir, sem einhverjir Frakkar fundu á einhverju rambi um svæðið í byrjun síðustu aldar. Hann er djúpur dropasteinahellir, en sumir höfðu á orði, að hafandi sigið í Þríhnúkagíg væri hann ekkert merkilegur.

Umferðin í Hanoi er klikkuð, það er ekkert annað um það að segja, ætli maður yfir götu verður maður að spila sig umferðarlögreglu, reka fram hendina í umferðarátt og horfa ákveðið í augu riddara götunnar og ganga svo rösklega yfir.

Hanoi er áhugaverð borg, gamla hverfið ber svip franska nýlendutímans og stundum fannst okkur eins og við værum í París. Í Viet Nam stríðinu svokallaða rigndi sprengjum yfir Hanoi í 13 ár en Viet Kong unnu stríðið eins og allir vita.

Ho Chi Minh er þjóðhetja Vietnama og lík hans liggur smurt í grafhýsi í borginni eins og svo margra annarra kommúnistaleiðtoga í öðrum löndum.

Maturinn er dásamlegur, fórum á matreiðslunámskeið og lærðum að elda víetnamískt...já, líka flugmennirnir !

Oman á morgun, okkur langar að koma aftur hingað til Viet Nam....dásamlegt land !




                                            Sjórinn í Ha Long Bay var ljúfur og heitur.

                                                                       Three amigos.


                                                       Snekkjan okkar, Kareokee Queen.

Kræsingar beint úr hafinu.

Við fórum að skoða fallega list og útsaum sem er ma gerður af fólki sem hefur fæðst með þroskahömlun vegna notkunnar ameríkana á "agent orange" eiturefninu í Viet Nam stírðinu.


Geturðu fundið smábarnið á myndinni?

Semi-sjálfstýring

Kóarinn fær bónus fyrir svakalega góðar lendingar.....

Sæt samvinna.

Elín mjög svo "local".


Oman næst

2 comments:

  1. Yndislegt að fylgjast með ykkur og sjá þessa ævintýraveröld, sem þið heimsækið :) Takk, takk fyrir frábæra blogg-síðu :))
    Kveðjur af Grandanum
    KM - KMA - BMA

    ReplyDelete
  2. Flottar voruð þið í Víetnam dressunum! Já já og strákarnir líka!

    ReplyDelete