Friday, September 28, 2012

Kína - Víet Nam.

Við höfðum hlakkað til þessarar stundar, að hitta farþegana okkar á ný, komast í loftið og fljúga til Viet Nam. Kína var athyglisverður staður en þessi menningarheimur eru geysilega ólíkur þeim sem við þekkjum á Íslandi.
Það hafa ekki verið margar stundirnar sem við höfum setið auðum höndum sl 2 daga og því hefur ekki gefist mikill tími til "skrifta". Hvað um það, hér koma nokkrar Kínamyndir, svona bland í poka.

Algerlega alger snilldar vinnuhópur í þetta verkefni.



Það má láta sig dreyma.


Flottur drekabátur


Gasgrímur voru á öllum hótelherbergjunum okkar í Kína. En ekkert straujárn!!

Ber er hver að baki nema kollega eigi.

Búið að gera smá heimavinnu. Eins gott að vera tilbúnir fyrir athyglisverða kínverska flugumferðarstjóra.


Mikil þjónusta á frekar stuttu flugi. Maggi flugvirki var fenginn í uppvaskið þegar mest var að gera.

Íslenski smalahundurinn klikkar ekki. kátur með flottu eyrun sín. Stelpurnar færðu farþega konfekt í tilefni 53 ára brúðkaupsafmælis.


Mögnuð 800 ára gömul stytta af Buddha. Gamla Kína er flott.

Þessi sjéffi kvaddi okkur í Kína, að hermanna sið.


Og næst er það Víet Nam. Við hlökkum svo mikið til að koma þangað. Það eru til margar myndir sem þarf að sýna ykkur, það er ekki alveg tími til þess núna þar sem við förum snemma í háttinn í kvöld. Mæting eldsnemma út á flugvöll. Hér er þó smá sýnishorn úr þessari paradís sem okkur finnst Viet Nam vera.  Dillý, take it away.......




2 comments:

  1. þetta gæti nú verið í þjórsárdalnum í sumar! Eða hvar sem er á Íslandi! Fallegt eigi að síður. Meira að segja landslagið er fallegt þó fallegasta kona í heimi skyggi dálíið á það!

    ReplyDelete
  2. Þórunn B. MarinósdóttirSeptember 28, 2012 at 7:11 AM

    Svo gaman að fylgjast með ykkur yndislega fólk:)
    Hlakka til að sjá meira!!

    Risaknús&love
    Tóta

    ReplyDelete