KÍNA.....
Ólík......en samt ekki svo
Ningbo kom okkur verulega á óvart. Hér búa 6 milljónir manna, í einhvers konar
2007 þema , neon skilti um allt, mikill harði og spenna, nýríkir Kínverjar í
botnlausri neyslu.
Risastór háhýsi standa TÓM hundruðum eða þúsundum saman.
Því ákváðum við að leggja á okkur tveggja tíma akstur til
Hangzhou, sem er talin fallegasta borg í Kína. Og hún var sannarlega falleg,
alla vega miðað við Ningpo. Fórum í
Lingyin búddahofið sem geymir stærsta trébúddalíkneski í Kína og er mjög
heilagur staður. Musterið var fyrst
byggt fyrir 800 árum og má sjá búddamyndir höggnar í klettaveggi frá þeim tíma.
Aksturinn til Hangzhou var ansi langur, en þess virði að sjá "gamla Kína"
Þar á eftir sigldum við á
West-Lake vatninu og rifjuðum upp sögu Kína frá keisurum til kommúnisma.
Fallegt sólarlag
Höldum til Hanoi í fyrramálið, flugtíminn aðeins tveir og
hálfur tími, í hásuður. Ekki laust við
að við söknum farþeganna okkar..........
Þjóðverjar fengu fallega Buddha merkið að "láni". Magnað.
0.4 lítrar kosta um 400kr. Það er 1000 kr lítraverð!
Hakakross nasista var reyndar akkúrat öfugur (Sjálfmenntaður sérfræðingur í Seinni Heimsstyrjöldinni)
ReplyDeleteSakna þín mamma :)
Svo gaman að fylgjast með ykkur, þetta er greinilega algjört ævintýri- Gangi ykkur áfram vel, njótið og góða skemmtun.
ReplyDeleteBestu kveðjur frá Ítalíu, Ása Sörusystir=)
Hallóóó fallega fólk!! Mikið er gaman að fylgjast með ykkur um heiminn! Flott blog og geðveikar myndir! Rifjast svo margt upp við að sjá þetta. Bið að heilsa Sigga mínum og já auðvitað ykkur öllum. Hér er haustrigning og var að koma af námskeiði. Same old same old! Gangi ykkur vel áfram og veit þið rúllið þessu upp! saknaðarkveðja
ReplyDeleteSigga Toll
p.s. fólk er að tala um að erfitt sé að skrifa inn á bloggið hjá ykkur, það er smá vesen að komast inn og fá að skrifa, þarf að velja síðu og gera alls konar leyniorð. Kannski er þetta bara orðið svona strangt í dag, hér áður gat maður bara skrifað og séð hverjir skrifuðu. Knús!
Jammsí búin að reyna að kommenta nokkrum sinnum, prófa aftur núna.
ReplyDeleteHef bara eitt að segja um ykkur, ferðina og bloggið - ÆÐI!
knúses, gfh