Wednesday, September 19, 2012

Nýtt og betra blogg



Miðvikudag 19. september 2012, leggur TF-IST, Boeing 757 þota Icelandair upp í mikið verkefni sem teygir anga sína yfir fjölmörg framandi lönd, þar á meðal Indland, Kína, Víetnam, Oman og fleiri staði. Verkefni þetta spannar um 18 daga í heildina og verða flognir um 25.000 km á þeim tíma við ýmsar aðstæður ólíkar því sem við þekkjum á hefbundnum áfangastöðum Icelandair.

Verkefni þetta er í samstarfi við ferðaþjónustuaðilann TCS & Starquest Expeditions sem hefur mikla reynslu á sviði sérferða fyrir ferðamenn um heim allan. Þessi ferð ber heitið "Cultures and Cuisines" sem mætti útleggja sem Menning og Matur á íslenska tungu og verður ekkert til sparað svo gera megi þessa ferð ógleymanlega fyrir farþegana. Mikil undirbúningsvinna hefur átt sér stað síðastliðnar vikur og hafa fjölmargar deildir innan fyrirtækisins komið að skipulagningu þessa verkefnis svo allt megi ganga eins og í sögu.

Næsti áfangastaður er Búdapest.....

1 comment:

  1. Hér hef ég sett inn ummæli á nokkrum sekúndum. Gæti ekki verið auðveldara.

    ReplyDelete