Thursday, September 20, 2012

DAGUR 1. Keflavík-Budapest
Samvinna alla leið!
 


Spenningur fyrir fyrsta fluginu í þessari ferð og margt sem þurfti að ganga upp. Undirbúningur síðustu vikna skilaði sér beint í mark! Allt heppnaðist vel og ýtti vélin úr hlaði á réttum tíma :) og hóf sig til lofts í frábæru veðri. Farþegum var boðið uppá útsýnisflug yfir Reykjavík og Eyjafjallajökul við mikla lukku. Alveg óhætt að segja það. Síðan hófust veisluhöldin og var farþegum boðið uppá dýrindis veigar. Kokkarnir okkar, snillingarnir höfðu í nógu að snúast, freyjurnar okkar alveg pottþéttar.  Eftir lendingu í Budapest tók strax við undirbúningur fyrir næsta flug sem fer til Indlands nk föstudag. Þrif á flugvél, eldsneytisáfylling og smávægilegar viðgerðir á innanstokksmunum. 


Allt klárt í stjórnklefanum.
 
 
Nokkur hundruð kíló af aukabúnaði og varahlutum eru geymdir í lestinni. 
 
 
Návígi við Eyjafjallajökul.
 
 
Leiðangursstjóri ferðarinnar á 55 ára afmæli í dag og fékk óvæntan glaðning frá fegurðardísunum.
 
 
 
Fylgist með næstu ferð sem liggur frá Budapest til Amritsar í Indlandi!
 
kveðjur heim. Team Cultures&Cusines.

 

5 comments:

  1. Jiiiii hvað þetta er allt spennandi hjá ykkur, mun fylgjast spennt með ykkkur næstu vikurnar! Þið kunnið svo sannarlega að "entertaina" grasekkjunni heima í Kópavoginum, knús til ykkar! :)

    ReplyDelete
  2. Já, sæll!! Flott er það! Og þetta er miklu betra, allavega að komast inn og skrifa smá kveðju! Byrjið vel og gaman að sjá myndir strax. Góða ferð áfram og knús á ykkur öll! Haustkveðja Sigga Toll

    ReplyDelete
  3. Oh innilegar hamingjuóskir með 55 ára afmælisdaginn þinn kæri Diddi vinur og gangi ykkur allt í haginn flotta fólk :-)

    ReplyDelete
  4. Gaman að fá að fylgjast með ykkur hér!!! Afmælisknús á pabba;) Krúttlegt af ykkur að dekra svona við hann í tilefni dagsins;) Gangi ykkur vel!!!

    ReplyDelete
  5. Siggi er ekkert skipulag hjá þér í niðri í belly ;)

    Góða ferð og skemmtun...

    kv.
    Maggi

    ReplyDelete