Spenningur fyrir fyrsta fluginu í þessari ferð og margt sem þurfti að ganga upp. Undirbúningur síðustu vikna skilaði sér beint í mark! Allt heppnaðist vel og ýtti vélin úr hlaði á réttum tíma :) og hóf sig til lofts í frábæru veðri. Farþegum var boðið uppá útsýnisflug yfir Reykjavík og Eyjafjallajökul við mikla lukku. Alveg óhætt að segja það. Síðan hófust veisluhöldin og var farþegum boðið uppá dýrindis veigar. Kokkarnir okkar, snillingarnir höfðu í nógu að snúast, freyjurnar okkar alveg pottþéttar. Eftir lendingu í Budapest tók strax við undirbúningur fyrir næsta flug sem fer til Indlands nk föstudag. Þrif á flugvél, eldsneytisáfylling og smávægilegar viðgerðir á innanstokksmunum.
Fylgist með næstu ferð sem liggur frá Budapest til Amritsar í Indlandi!
kveðjur heim. Team Cultures&Cusines.
Jiiiii hvað þetta er allt spennandi hjá ykkur, mun fylgjast spennt með ykkkur næstu vikurnar! Þið kunnið svo sannarlega að "entertaina" grasekkjunni heima í Kópavoginum, knús til ykkar! :)
ReplyDeleteJá, sæll!! Flott er það! Og þetta er miklu betra, allavega að komast inn og skrifa smá kveðju! Byrjið vel og gaman að sjá myndir strax. Góða ferð áfram og knús á ykkur öll! Haustkveðja Sigga Toll
ReplyDeleteOh innilegar hamingjuóskir með 55 ára afmælisdaginn þinn kæri Diddi vinur og gangi ykkur allt í haginn flotta fólk :-)
ReplyDeleteGaman að fá að fylgjast með ykkur hér!!! Afmælisknús á pabba;) Krúttlegt af ykkur að dekra svona við hann í tilefni dagsins;) Gangi ykkur vel!!!
ReplyDeleteSiggi er ekkert skipulag hjá þér í niðri í belly ;)
ReplyDeleteGóða ferð og skemmtun...
kv.
Maggi